Fara yfir í megininnihald

Acetic Acid

Skilgreining

Acetic acid er sú sýra sem gefur ediki sterka lykt og súrt bragð. Efnið hefur verið notað á heimilum fólks í meira en 10.000 ár. Í vörum okkar er efnið notað sem hreinsiefni sem fjarlægir óhreinindi og skánir og einnig til að stilla sýrustig (pH) vöru til að bæta stöðugleika hennar. Sérhver efnablanda á sér ákveðið sýrustig þar sem efnið virkar sem best. Til dæmis virkar efnablanda sem er svolítið súr betur til að fjarlægja sápufroðu. Aftur á móti er basísk efnablanda skilvirkari við að fjarlægja fitu eða fitubundin óhreinindi. Við notum sýrustillandi efni til að tryggja að við náum fram besta sýrustiginu fyrir ákveðið verkefni. Ennfremur getur sýrustig efnablöndunnar haft áhrif á hversu lengi blandan endist í íláti, t.d. getur það takmarkað hneigð efnisins til að tæra flösku, ílát eða efnadreifara.